5. nóvember 2011

JYC class

Eða Journal Your Christmas class, er námskeið sem ég var að skrá mig á, á netinu. Það er súper skrapparinn Shimelle sem stendur fyrir þessu námskeiði og byrjar það núna 1. Desember. Ég veit reyndar voðalega lítið út í hvað ég er að fara, en þetta verður vonandi bara gaman. Veit heldur ekkert hvað ég hef mikinn tíma til að taka þátt, þar sem Desember er jú frekar upptekin mánuður, og ég verð bæði að vinna, hugsa um stelpurnar og gera allt annað klárt fyrir jólin.... já og kannski það sem skiptir mestu máli, þá er skrappherbergið mitt ekki tilbúið... langt í frá, og ég er ekki með heilsu í að klára að græja það, og kallinn verður meira í vinnunni í des heldur en heima hjá sér. Jæja maður verður bara að taka Pollýönnu á þetta, er það ekki ;)

Nú, ef herbergið kemst ekki í almennilegt horf núna á næstunni þá er alltaf tími eftir að Marsbúarnir eru komnir í heiminn... ég get kannski nýtt tíman á meðan þau sofa til að laga til þar inni... enda eins og staðan er núna get ég ekki fært til kassa eða setið lengi til að vera að vinna þar inni... svo það er ljós við enda ganganna LOL, ég verð bara að loka augunum þegar að ég labba framhjá herberginu eða loka hurðinni þar til í lok Mars byrjun Apríl til að sjá ekki draslið.

Engin ummæli: