29. september 2008

Hér er ró, hér er friður...

Gerði þessar um daginn.... myndirnar eru teknar á klósettinu í hótelíbúðinni okkar úti á Benidorm núna í sumar. Fékk nett áfall þegar að ég sá þetta klósett fyrst, en sprakk svo úr hlátri:) vaskurinn, baðkarið og skolskálinn voru svo í hinu meginn við vegginn... en það krafðist þá þess að ef maður ætlaði að nota skolskálina þá varð maður að hlaupa með brókina á hælunum fram og inn í næsta herbergi/bað.

en allavega....

17. september 2008

Friday sketchers # 19

Ákvað að stíga aðeins út fyrir öryggisrammann og taka þátt i korta áskorun. Fyrir valinu varð þessi áskorun: http://fridaysketchersblog.blogspot.com/ og þetta er skissan fyrir þessa viku:







og þetta er kortið sem ég gerði eftir henni

ný kort...

Gerði 2 kort um daginn.... myndin af öðru kortinu er svolítið úr fókus, en ég kann ekki að laga það:( og ég get ekki tekið nýja mynd þar sem ég er búin að gefa kortið...
En hérna koma þessi 2:

Edwin að spila á gítar, varðeldur og sandurinn á ströndinni er ekta sandur af ströndinni á Benidorm:)





Tilda, köttur, hundurinn Rúfus, tröppur, veggur, snigill og býflugur:




1. september 2008

2 ný kort....



og eitt i fæðingu... eða þannig sko. Er með hugmynd af korti í kollinum, og er svona aðeins byrjuð á því... klára það vonandi á morgun. En hér eru myndir af 2 kortum sem ég gerði um daginn. Annað var afmæliskort handa Óla,mági mínum, og var svarti hringurinn i raun kortið sem fylgdi kassanum sem afmælisgjöfin fór í... Hitt var bara svona hugdetta.... langaði að prófa að láta Tildu sitja á bekknum en ekki venjulega... myndin er því miður pínu óskýr, en ég held að þið sjáið alveg hvernig það er uppbyggt:)






17. ágúst 2008

Þú veist að það er 2008 ef....

1. Þú ferð í Party og byrjar að taka myndir fyrir bloggið þitt.

2. Þú hefur ekki spilað kapal með alvöru spilastokk í nokkur ár.

3. Ástæðan fyrir því að þú ert ekki í sambandi við suma vini þína er af þvíþeir eru ekki að blogga, ekki á MySpace og eða á Facebook .

4. Þú leitar frekar um alla íbúð af fjarstýringunni í stað þess að ýta baraá takkann á sjónvarpinu.

6. Kvöldstundir þínar snúast um að setjast niður fyrir framan tölvuna.

7. Þú lest þennan lista kinkandi kolli og brosandi.

8. Þú hugsar um hvað það er mikil vitleysa að lesa þennan lista.

9. Þú ert of upptekin/nn að taka eftir númer fimm.

10. Þú virkilega skrollaðir tilbaka til að athuga hvort þar væri númer fimm.

11. Svo hlærðu af heimsku þinni.

12. Sendu þetta á vini þina, settu þetta á bloggið þitt eða komdu þessu á framfæri einhverstaðar EF þú félst fyrir þessu...

Aha ekkert svona fyrst að þú féllst fyrir þessu.

Sendu þetta á vini þina, á bloggið þitt eða komdu þessu á framfærieinhverstaðar innan 2 mínútna og 14 sek eða minna og morgundagurinn þinnverður besti dagur sem þú hefur upplifað .. hingað til!
En, ef þú bíður of lengi,mun það ekki skipta neina því hverjum er ekki sama svona lista ... Envinir þínar munu missa af frábæri skemmtun....

(birt óbreytt af bloggi sem ég las fyrir nákvæmlega 2 mínútum og 13 sekúndum síðan!!!!)

14. ágúst 2008

Rennandi blaut bláber:(

Ákvað að skreppa í berjamó í dag... spáð var ágætu veðri í dag, en svo átti að rigna á morgun föstudag og um helgina.... en þar sem ég er ótrúlega heppin þá auðvitað fór að rigna á okkur rétt um það leiti sem við fórum út. Og það rigndi allan tíman sem við vorum að tína... týpískt alveg.

Nú það endaði náttúrulega á því að við gáfumst upp, skelltum okkur inn í hús, fengum okkur að borða í drekkutímanum, og lögðum svo af stað heim... Þegar að við vorum að verða komin hálfa leið heim hætti auðvitað að rigna og sólin fór að skína...

Hekla var reyndar frekar pirruð eitthvað og vildi ekki tína með okkur, endaði bara á að leika sér en Sara sat í móanum í smá stund, en svo sá ég að hún var farin að verða þreytt, svo að ég náði í kerruna út í bíl, setti Söru í hana og hún sofnaði með það sama.... og það sem barnið svaf í kerrunni i þessari rigningu... hún var í pollagalla, stígvélum og svo var regnplast yfir henni, og það hefur öruggulega gert það að verkum að hún svaf svona... að hlusta á regnið falla á plastið:)


Fór svo í bíó með mömmu eftir mat. Fórum á MAMMA MÍA og hún er bara æði... mæli sko með henni. Ætla pottþétt að kaupa mér hana þegar að hún kemur út á DVD.

7. ágúst 2008

byrjuð að skrappa...

Fórum upp í bústað um verslunnarmannahelgina, og þar sem við ætluðum að vera í 3 daga, þá ákvað ég að taka með mér skrappið... Prentaði út fullt af myndum og fann til pappír fyrir allar myndirnar. Skrappaði svo eina síðu á sunnud. og byrjaði á 4 öðrum. Gat ekki klárað þær því að ég var ekki með það skraut sem mig langaði að nota... Get svo ekki beðið með að klára þær og byrja á hinum um eða eftir þessa helgi... er svona að ná að detta inn í skrapp gírinn aftur... enda ekki seinna vænna, þar sem ég er svo til ekkert farin að skrappa um Söru og hún er orðin 9 mánaða!

Tek kannski mynd af þessari einu síðu á morgun og pósta henni hingað inn...

28. júlí 2008

Ekkert föndur...

fór upp í bústað til tendó um helgina... fórum reyndar ekki fyrr en á laugardaginn um hádegi, og komum aftur heim um miðjan sunndaginn. Og þar sem við ætluðum ekki að vera lengur en sólarhring þá nennti ég ekki að taka skrappið eða kortadótið með mér... Og kallinn minn var alla leiðina að jafna sig á því... hann var farin að halda að ég væri alvarlega veik:) LOL.

Lennti reyndar í leiðinlegu atviki á föstudaginn. Það var keyrt utan í bílinn minn við Kringluna, og annar hliðarspegilinn brotinn. Sem betur fer hafðist upp á hinum ökumanninum, og við hittumst í gær og gengum frá tjónaskýrslunni, svo að nú er bara að bíða eftir að þetta fari i gegnum tryggingarnar svo að ég geti látið laga þetta. Hann baðst svo afsökunar og þetta er allt í góðu...:)


Er svo búin að finna fullt af myndum sem mig klæjar í puttana að fara að skrappa.... Fer sennilegast í það í lok þessarar viku og eitthvað í næstu viku, þar sem mamma ætlar að taka eldra afkvæmið með í sumarbústað í viku... veit nú alveg að ég á eftir að sakna hennar... hef svosem upplifað það að vera frá henni í viku áður... en samt... ég á eftir að sakna hennar.

21. júlí 2008

Myndirnar komnar

Hér eru myndir af kortunum mínum....



Þetta er kortið sem ég gerði núna um helgina... Tilda og bekkurinn eru á 3-D púðum og allt er litað með prisma litunum mínum. Tilda og bekkurinn eru úr nýja sumar stamp club kitinu...




Edwin og Rufus eru á 3-D púðum og litaðir með prisma litum


Edwin með gítar, Heidi Swapp klukku stimpill, ég lenti í smá vandræðum með límið... það rann svo til og gerði blett í kortið:( En Edwin og bekkurinn eru úr nýja sumar stamp club kitinu:)

nokkur kort í valnum....

jæja, skruppum upp í sumó til tengdó um helginó... (hélt óvart áfram með þessi ó...) þrátt fyrir geggjað veður á laugardaginn, sem var nýttur í útiveru, sólbað og stólaþvott...(kem að því síðar) þá tókst mér samt að gera eitt kort. Gerði svo 2 kort um síðustu helgi... Ætla að taka mynd af þeim á eftir og setja þau hingað inn til að sýna ykkur.

En aftur að stólaþvottinum, tengdapabbi keypti Hókus Pókus stól handa litlu dömunum í fjölsk. í góða hirðinum, og hann var svona í skítugri kantinum, svo að hetjan ég skrúfaði hann í sundur, þvoði hann og setti hann saman aftur, ekki slæmt að gera þetta og hressa aðeins upp á brúna litinn í leiðinni:)

Úpps... þarf að kíkja á brauðbollurnar mínar... passa að þær brenni ekki... kem næst inn með myndir af nýju kortunum...

15. júlí 2008

Garg....

ég er búin að reyna að setja inn slide show með myndum af kortunum mínum og það vill ekki koma inn.... hvernig í fjandanum er þetta gert???

jæja....

Enn á ný reyni ég fyrir mér í blogg heimum. Hérna er það alla vega frítt! Reyni að finna út hvernig þetta virkar og hvernig ég set inn myndir...