fór upp í bústað til tendó um helgina... fórum reyndar ekki fyrr en á laugardaginn um hádegi, og komum aftur heim um miðjan sunndaginn. Og þar sem við ætluðum ekki að vera lengur en sólarhring þá nennti ég ekki að taka skrappið eða kortadótið með mér... Og kallinn minn var alla leiðina að jafna sig á því... hann var farin að halda að ég væri alvarlega veik:) LOL.
Lennti reyndar í leiðinlegu atviki á föstudaginn. Það var keyrt utan í bílinn minn við Kringluna, og annar hliðarspegilinn brotinn. Sem betur fer hafðist upp á hinum ökumanninum, og við hittumst í gær og gengum frá tjónaskýrslunni, svo að nú er bara að bíða eftir að þetta fari i gegnum tryggingarnar svo að ég geti látið laga þetta. Hann baðst svo afsökunar og þetta er allt í góðu...:)
Er svo búin að finna fullt af myndum sem mig klæjar í puttana að fara að skrappa.... Fer sennilegast í það í lok þessarar viku og eitthvað í næstu viku, þar sem mamma ætlar að taka eldra afkvæmið með í sumarbústað í viku... veit nú alveg að ég á eftir að sakna hennar... hef svosem upplifað það að vera frá henni í viku áður... en samt... ég á eftir að sakna hennar.
28. júlí 2008
21. júlí 2008
Myndirnar komnar
Hér eru myndir af kortunum mínum....
Þetta er kortið sem ég gerði núna um helgina... Tilda og bekkurinn eru á 3-D púðum og allt er litað með prisma litunum mínum. Tilda og bekkurinn eru úr nýja sumar stamp club kitinu...
Þetta er kortið sem ég gerði núna um helgina... Tilda og bekkurinn eru á 3-D púðum og allt er litað með prisma litunum mínum. Tilda og bekkurinn eru úr nýja sumar stamp club kitinu...
Edwin og Rufus eru á 3-D púðum og litaðir með prisma litum
Edwin með gítar, Heidi Swapp klukku stimpill, ég lenti í smá vandræðum með límið... það rann svo til og gerði blett í kortið:( En Edwin og bekkurinn eru úr nýja sumar stamp club kitinu:)
nokkur kort í valnum....
jæja, skruppum upp í sumó til tengdó um helginó... (hélt óvart áfram með þessi ó...) þrátt fyrir geggjað veður á laugardaginn, sem var nýttur í útiveru, sólbað og stólaþvott...(kem að því síðar) þá tókst mér samt að gera eitt kort. Gerði svo 2 kort um síðustu helgi... Ætla að taka mynd af þeim á eftir og setja þau hingað inn til að sýna ykkur.
En aftur að stólaþvottinum, tengdapabbi keypti Hókus Pókus stól handa litlu dömunum í fjölsk. í góða hirðinum, og hann var svona í skítugri kantinum, svo að hetjan ég skrúfaði hann í sundur, þvoði hann og setti hann saman aftur, ekki slæmt að gera þetta og hressa aðeins upp á brúna litinn í leiðinni:)
Úpps... þarf að kíkja á brauðbollurnar mínar... passa að þær brenni ekki... kem næst inn með myndir af nýju kortunum...

15. júlí 2008
Garg....
ég er búin að reyna að setja inn slide show með myndum af kortunum mínum og það vill ekki koma inn.... hvernig í fjandanum er þetta gert???
jæja....
Enn á ný reyni ég fyrir mér í blogg heimum. Hérna er það alla vega frítt! Reyni að finna út hvernig þetta virkar og hvernig ég set inn myndir...
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)