17. ágúst 2008

Þú veist að það er 2008 ef....

1. Þú ferð í Party og byrjar að taka myndir fyrir bloggið þitt.

2. Þú hefur ekki spilað kapal með alvöru spilastokk í nokkur ár.

3. Ástæðan fyrir því að þú ert ekki í sambandi við suma vini þína er af þvíþeir eru ekki að blogga, ekki á MySpace og eða á Facebook .

4. Þú leitar frekar um alla íbúð af fjarstýringunni í stað þess að ýta baraá takkann á sjónvarpinu.

6. Kvöldstundir þínar snúast um að setjast niður fyrir framan tölvuna.

7. Þú lest þennan lista kinkandi kolli og brosandi.

8. Þú hugsar um hvað það er mikil vitleysa að lesa þennan lista.

9. Þú ert of upptekin/nn að taka eftir númer fimm.

10. Þú virkilega skrollaðir tilbaka til að athuga hvort þar væri númer fimm.

11. Svo hlærðu af heimsku þinni.

12. Sendu þetta á vini þina, settu þetta á bloggið þitt eða komdu þessu á framfæri einhverstaðar EF þú félst fyrir þessu...

Aha ekkert svona fyrst að þú féllst fyrir þessu.

Sendu þetta á vini þina, á bloggið þitt eða komdu þessu á framfærieinhverstaðar innan 2 mínútna og 14 sek eða minna og morgundagurinn þinnverður besti dagur sem þú hefur upplifað .. hingað til!
En, ef þú bíður of lengi,mun það ekki skipta neina því hverjum er ekki sama svona lista ... Envinir þínar munu missa af frábæri skemmtun....

(birt óbreytt af bloggi sem ég las fyrir nákvæmlega 2 mínútum og 13 sekúndum síðan!!!!)

14. ágúst 2008

Rennandi blaut bláber:(

Ákvað að skreppa í berjamó í dag... spáð var ágætu veðri í dag, en svo átti að rigna á morgun föstudag og um helgina.... en þar sem ég er ótrúlega heppin þá auðvitað fór að rigna á okkur rétt um það leiti sem við fórum út. Og það rigndi allan tíman sem við vorum að tína... týpískt alveg.

Nú það endaði náttúrulega á því að við gáfumst upp, skelltum okkur inn í hús, fengum okkur að borða í drekkutímanum, og lögðum svo af stað heim... Þegar að við vorum að verða komin hálfa leið heim hætti auðvitað að rigna og sólin fór að skína...

Hekla var reyndar frekar pirruð eitthvað og vildi ekki tína með okkur, endaði bara á að leika sér en Sara sat í móanum í smá stund, en svo sá ég að hún var farin að verða þreytt, svo að ég náði í kerruna út í bíl, setti Söru í hana og hún sofnaði með það sama.... og það sem barnið svaf í kerrunni i þessari rigningu... hún var í pollagalla, stígvélum og svo var regnplast yfir henni, og það hefur öruggulega gert það að verkum að hún svaf svona... að hlusta á regnið falla á plastið:)


Fór svo í bíó með mömmu eftir mat. Fórum á MAMMA MÍA og hún er bara æði... mæli sko með henni. Ætla pottþétt að kaupa mér hana þegar að hún kemur út á DVD.

7. ágúst 2008

byrjuð að skrappa...

Fórum upp í bústað um verslunnarmannahelgina, og þar sem við ætluðum að vera í 3 daga, þá ákvað ég að taka með mér skrappið... Prentaði út fullt af myndum og fann til pappír fyrir allar myndirnar. Skrappaði svo eina síðu á sunnud. og byrjaði á 4 öðrum. Gat ekki klárað þær því að ég var ekki með það skraut sem mig langaði að nota... Get svo ekki beðið með að klára þær og byrja á hinum um eða eftir þessa helgi... er svona að ná að detta inn í skrapp gírinn aftur... enda ekki seinna vænna, þar sem ég er svo til ekkert farin að skrappa um Söru og hún er orðin 9 mánaða!

Tek kannski mynd af þessari einu síðu á morgun og pósta henni hingað inn...