21. júlí 2008

nokkur kort í valnum....

jæja, skruppum upp í sumó til tengdó um helginó... (hélt óvart áfram með þessi ó...) þrátt fyrir geggjað veður á laugardaginn, sem var nýttur í útiveru, sólbað og stólaþvott...(kem að því síðar) þá tókst mér samt að gera eitt kort. Gerði svo 2 kort um síðustu helgi... Ætla að taka mynd af þeim á eftir og setja þau hingað inn til að sýna ykkur.

En aftur að stólaþvottinum, tengdapabbi keypti Hókus Pókus stól handa litlu dömunum í fjölsk. í góða hirðinum, og hann var svona í skítugri kantinum, svo að hetjan ég skrúfaði hann í sundur, þvoði hann og setti hann saman aftur, ekki slæmt að gera þetta og hressa aðeins upp á brúna litinn í leiðinni:)

Úpps... þarf að kíkja á brauðbollurnar mínar... passa að þær brenni ekki... kem næst inn með myndir af nýju kortunum...

Engin ummæli: