fór upp í bústað til tendó um helgina... fórum reyndar ekki fyrr en á laugardaginn um hádegi, og komum aftur heim um miðjan sunndaginn. Og þar sem við ætluðum ekki að vera lengur en sólarhring þá nennti ég ekki að taka skrappið eða kortadótið með mér... Og kallinn minn var alla leiðina að jafna sig á því... hann var farin að halda að ég væri alvarlega veik:) LOL.
Lennti reyndar í leiðinlegu atviki á föstudaginn. Það var keyrt utan í bílinn minn við Kringluna, og annar hliðarspegilinn brotinn. Sem betur fer hafðist upp á hinum ökumanninum, og við hittumst í gær og gengum frá tjónaskýrslunni, svo að nú er bara að bíða eftir að þetta fari i gegnum tryggingarnar svo að ég geti látið laga þetta. Hann baðst svo afsökunar og þetta er allt í góðu...:)
Er svo búin að finna fullt af myndum sem mig klæjar í puttana að fara að skrappa.... Fer sennilegast í það í lok þessarar viku og eitthvað í næstu viku, þar sem mamma ætlar að taka eldra afkvæmið með í sumarbústað í viku... veit nú alveg að ég á eftir að sakna hennar... hef svosem upplifað það að vera frá henni í viku áður... en samt... ég á eftir að sakna hennar.
2 ummæli:
Til hamingju með nýja bloggið :o) Þetta lítur bara ljómandi vel út hjá þér og myndin af stelpunum er algjört æði !!
Sæl Drífa. Fann Barnalandssíðuna þína, en það var allt lokað á mig :( Virkilega flott skrappið hjá þér, enda varla annað hægt með tvær gullfallegar fyrirsætur :)
kveðjur úr Hafnarfirðinum
Harpa og Arnbjörg Ýr
Skrifa ummæli