7. ágúst 2008

byrjuð að skrappa...

Fórum upp í bústað um verslunnarmannahelgina, og þar sem við ætluðum að vera í 3 daga, þá ákvað ég að taka með mér skrappið... Prentaði út fullt af myndum og fann til pappír fyrir allar myndirnar. Skrappaði svo eina síðu á sunnud. og byrjaði á 4 öðrum. Gat ekki klárað þær því að ég var ekki með það skraut sem mig langaði að nota... Get svo ekki beðið með að klára þær og byrja á hinum um eða eftir þessa helgi... er svona að ná að detta inn í skrapp gírinn aftur... enda ekki seinna vænna, þar sem ég er svo til ekkert farin að skrappa um Söru og hún er orðin 9 mánaða!

Tek kannski mynd af þessari einu síðu á morgun og pósta henni hingað inn...

Engin ummæli: