Ákvað að skreppa í berjamó í dag... spáð var ágætu veðri í dag, en svo átti að rigna á morgun föstudag og um helgina.... en þar sem ég er ótrúlega heppin þá auðvitað fór að rigna á okkur rétt um það leiti sem við fórum út. Og það rigndi allan tíman sem við vorum að tína... týpískt alveg.
Nú það endaði náttúrulega á því að við gáfumst upp, skelltum okkur inn í hús, fengum okkur að borða í drekkutímanum, og lögðum svo af stað heim... Þegar að við vorum að verða komin hálfa leið heim hætti auðvitað að rigna og sólin fór að skína...
Hekla var reyndar frekar pirruð eitthvað og vildi ekki tína með okkur, endaði bara á að leika sér en Sara sat í móanum í smá stund, en svo sá ég að hún var farin að verða þreytt, svo að ég náði í kerruna út í bíl, setti Söru í hana og hún sofnaði með það sama.... og það sem barnið svaf í kerrunni i þessari rigningu... hún var í pollagalla, stígvélum og svo var regnplast yfir henni, og það hefur öruggulega gert það að verkum að hún svaf svona... að hlusta á regnið falla á plastið:)
Fór svo í bíó með mömmu eftir mat. Fórum á MAMMA MÍA og hún er bara æði... mæli sko með henni. Ætla pottþétt að kaupa mér hana þegar að hún kemur út á DVD.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli